Styrkur vegna afreksverkefna 2023

Styrkur vegna afreksverkefna á eigin vegum vegna ársins 2023.

Í samræmi við fjárhagsáætlun TSÍ, verður sambærilegri upphæð ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2023 og gert var vegna ársins 2022.

Styrkurinn er eingöngu hugsaður til að létta undir kostnaði vegna þátttöku í mótum erlendis.

Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tsi.is

Skilafrestur umsókna er til og með miðvikudeginum 5. janúar 2024.

Umsóknin skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang umsækjanda.
  • Bankaupplýsingar.
  • Upplýsingar um mót erlendis, sem umsækjandi tók þátt í á árinu 2023:o Nafn móts og styrkleiki þess
    • Vefsíðu mótsins og árangur
    • Staðsetning (land og borg)
    • Tímasetning
    • Kostnaður
  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram.
  • Upphæð styrks sem sótt er um.

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum í mars 2024.