3.Stórmót TSÍ hefst í dag föstudaginn 30.október og stendur til og með sunnudagsins 1.nóvember í Tennishöllinni í Kópavogi.
Mótsskrá:
Nafnaleit – http://www.
Athuga – Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.
MINI Tennis keppnin fer fram á laugardaginn, 31.október, kl.12.30-14.
Verðlaun eru veitt fyrir 1., 2., og 3.sæti og þátttökuverðlaun fyrir alla í Mini Tennis flokkunum.
Öllum keppendum er boðið í verðlaunaafhendinguna sem verður mánudaginn, 2.nóvember kl.18.30 í Tennishöllinni í Kópavogi.
Endilega hafið samband við mótstjórann Raj K. Bonifacius í gegnum síma 820-0825 eða með tölvupósti á netfangið raj@tennis.is ef það vakna einhverjar spurningar.