3.Stórmót TSÍ verður haldið 30.október – 2.nóvember

3.Stórmót TSÍ 2015 verður haldið dagana 30. október – 5.nóvember næstkomandi í Tennishöllinni Kópavogi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” fyrir þau yngstu – fædd árið 2003 eða yngri og skipt í 10 ára og 12 ára flokka
  • Einliðaleik í barna-, unglinga-, og öðlingaflokkum – 10 ára / 12 ára / 14 ára / 16 ára / 18ára og yngri & 30 ára og eldri (U10, U12, U14, U16, U18 & Y30)
  • Hægt er að spila að hámarki í tveimur einliðaleiksflokkum í barnaflokkum og í ITN einliðaleik
  • Einliðaleik í ITN flokki (Ath! Hámark 48 keppendur)

Hægt er að spila að hámarki í tveimur einliðaleiksflokkum í barnaflokkum og í ITN einliðaleik.ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mótsgjald:

Einliðaleikur1.500 kr./mini tennis; 2.600 kr./ barna- og unglingaflokkum; 3.600 kr./ ITN – öðlinga

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: www.tennissamband.iswww.tennis.is eða á netfangið tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er miðvikudaginn, 28.október kl.18.00. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 29.október (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla inn í formið hér fyrir neðan. Athugið að mikilvægt er að skoða lista yfir skráða keppendur til að vera viss um að skráning hafi tekist.

 

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.