Stórmót TFK – TSÍ 100 2026 hafið í Tennishöllinni í Kópavogi – mótskrá

Stórmót TFK – TSÍ 100 2026 fer fram dagana 5.–8. nóvember í Tennishöllinni í Kópavogi. Alls eru 102 keppendur skráðir til leiks í 23 keppnisflokkum og má því búast við fjölbreyttri og spennandi tennishelgi.

Keppt verður í fjölmörgum aldurs- og styrkleikaflokkum, allt frá yngstu keppendunum í U10 til meistaraflokks og fullorðinsflokka 30 ára og eldri og 50 ára og eldri.

Á dagskrá eru bæði einliðaleikir og tvíliðaleikir, auk tvenndarleiks í meistaraflokki. Mótið gefur leikmönnum á ólíkum aldri og getustigum gott tækifæri til að öðlast keppnisreynslu, mæta nýjum andstæðingum og njóta þess að taka þátt í skemmtilegu tennisumhverfi.

Leikjadagskrá – beinir hlekkir fyrir hvern dag

Aðrar gagnlegar upplýsingar

Keppendur eru hvattir til að fylgjast reglulega með leikjadagskránni þar sem breytingar á leiktímum geta orðið á meðan mótinu stendur.

Keppnisfyrirkomulag

Mínítennis: Fyrirkomulag ákveðið af umsjónarmönnum út frá endanlegum þátttökulista, keppni fer fram laugardaginn, 7.nóvember kl.12.30-13.30

U10: Eitt míníssett upp í þrjár lotur, án forskots (no-ad) og án enduruppgjafar við netsnertingu (no-let). Við 2–2 er leikinn oddalotuleikur upp í sjö stig.

U12 / U14: Eitt sett upp í sex lotur. Við 6–6 er leikinn oddalotuleikur upp í sjö stig. No-ad og no-let gilda. Við 40–40 velur móttakandi hlið fyrir úrslitastigið.

U12 tvíliðaleikur: Eitt míníssett upp í fjórar lotur.

U16 / U18: Best úr þremur stuttum settum upp í fjórar lotur. Við 3–3 er leikið upp í fimm lotur og við 4–4 er leikinn oddalotuleikur upp í sjö stig. Þriðja settið er super tie-break upp í tíu stig. No-ad og no-let gilda.

Meistaraflokkur – undanúrslit og úrslit í einliðaleik: Best úr þremur hefðbundnum settum upp í sex lotur. Forskotsregla (deuce/advantage) og let gilda.

Aðrir flokkar: Best úr þremur stuttum settum upp í fjórar lotur. Við 3–3 er leikið upp í fimm lotur og við 4–4 er leikinn oddalotuleikur upp í sjö stig. Þriðja settið er super tie-break upp í tíu stig. No-ad gildir en let er leyfilegt.

Í öllum flokkum þar sem no-ad gildir velur móttakandi hlið fyrir úrslitastigið við stöðuna 40–40.

Mótsstjórn og fyrirspurnir

Mótsstjóri: Alfonso de Alba
Sími: 775-1250
Netfang: aj@tennishollin.is

Ef spurningar vakna varðandi leikjadagskrá, keppnisfyrirkomulag eða annað sem tengist mótinu eru keppendur og foreldrar hvattir til að hafa samband við Alfonso de Alba mótsstjóra.

Tennissamband Íslands óskar öllum keppendum góðs gengis og hvetur tennisáhugafólk til að mæta í Tennishöllina og fylgjast með spennandi leikjum!