Anna Soffia og Rafn Kumar sigruðu á 3.Stórmóti TSÍ

Feðgarnir Raj  og Rafn Kumar

Feðgarnir Raj og Rafn Kumar

3.Stórmót TSÍ lauk 2.nóvember síðastliðinn. Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúk­bolta­fé­lagi Reykja­vík­ur og Anna Soffía Grön­holm úr Tenn­is­fé­lagi Kópa­vogs stóðu uppi sem sigurvegarar í meistaraflokki karla og kvenna.

Rafn Kumar sigraði föður sinn Raj K. Bonifacius úr Tennisdeild Vík­ings örugglega 6-2 og 6:0 í úrslitaleik í meistaraflokki karla.

Frá vinstri: Anna Soffia Grönholm, Hera Björk Brynjarsdóttir og Sofia Sóley Jónasdóttir

Frá vinstri: Anna Soffia Grönholm, Hera Björk Brynjarsdóttir og Sofia Sóley Jónasdóttir

Anna Soffía sigraði Heru Björk Brynj­ars­dótt­ur úr Tennisdeild Fjölnis 9-6 í úrslitaleik í meistaraflokki kvenna. Leikurinn var hnífjafn að 6-6 en þá tók Anna Soffia til sinna ráða og vann síðustu þrjár loturnar og þar með leikinn 9-6.

Í undanúr­slit­um vann Rafn Kumar Teit Mars­hall úr Tennisdeild Fjölnis 6-0 og 6-0 og Raj vann Vla­dimir Ristic úr Tenn­is­fé­lagi Kópa­vogs, 7-6 og 6-2.

 

Öll úrslit í mótinu má sjá hér fyrir neðan:

ITN einliða
Fullorðnir 30 ára einliða
Börn 16 ára einliða
Börn 14 ára einliða
Börn 12 ára einliða
Börn 10 ára Einliða
Mini Tennis Einliða
20151102_190005_resized

Mini tennis þátttakendur

 

20151102_191311_resized20151102_190529_resized20151102_190953_resized