Mótið verður 25.‐27. nóvember 2016 í Tennishöllinni Kópavogi!
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- “Mini Tennis” í öllum barna- og unglingaflokkum – föstudaginn, 25. nóvember kl. 17-18
- Einliðaleikir í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
- Einliðaleikir í ITN flokki
ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.
Mótsgjald
Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis; 2.400 kr./ barna- og unglingaflokkar; 3.500 kr./ ITN
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætist þá við seðilgjald upp á 295 kr.
Skráning
Skráning hér að neðan og tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 21. nóvember kl. 18. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.
Öllum keppendum er boðið til pizzuveislu og verðlaunaafhendingar sunnudaginn, 27. nóvember eftir úrslitaleik í ITN flokki.
Mótaskrá
3.Stórmót TSÍ – ITN Einliða |
3.Stórmót TSÍ – 14 ára börn |
3.Stórmót TSÍ – 12 ára börn |
3.Stórmót TSÍ – 10 ára börn
MINI TENNIS flokkurinn keppir á föstudaginn, 25.nóv. kl.17-18 |
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is