Íslandsmót TSÍ innanhúss í tennis fór fram í Tennishöllin í Kópavogi með mikla þátttöku og spennandi keppni í fjölmörgum flokkum, allt frá yngstu iðkendum upp í eldri flokka. Mótið sýndi vel fram á vaxandi breidd og styrk íslensks tennis.
Hin 15 ára Emilía Eyva Thygesen (Víking) vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í flokki kvenna eftir sigur á Önnu Soffíu Grönholm (TFK), 6–4, 6–3. Emilía lenti undir 1–3 í fyrsta setti en náði að snúa leiknum sér í vil með öflugum leik. Rafn Kumar Bonifacius (HMR) sigraði Egil Sigurðsson (Víking), 6–1, 7–6, í úrslitaleik karla. Í öðru setti bjargaði hann þremur settboltum áður en hann tryggði sér sigur og þar með sinn níunda Íslandsmeistaratitil í einliðaleik karla innanhúss. Í leik um þriðja sæti í einliðaleik karla sigraði Daniel Pozo (Fjölnir) á móti Ómar Pál Jónasson (TFK) í þremur jöfnum settum, 5–4, 2–4, 10–8. Í einliðaleik kvenna tryggði Sofia Sóley Jónasdóttir (TFK) sér þriðja sætið með sigri á Saule Zukauskaite (Fjölnir), 4–1, 4–2. Í tvíliðaleik karla unnu Rafn Kumar og faðir hans, Raj K. Bonifacius (Víking), með sjálfgefnum sigri gegn þeim Alfonso de Alba (TFK) og Davíð Ármann Eyþórsson (TFG) í úrslitaleikinn. Í tvenndarleik unnu María Ósk J. Hermannsdóttir (TFG) og Viktor Freyr Hugason (TFK) sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í flokki fullorðinna eftir sigur á Stellu Balder og Tino Friscic (TFK), 4–1, 2–4, 10–8.
Mótið stóð yfir í fimm daga og tóku 162 keppendur þátt, á aldrinum sex til 63 ára, í 24 flokkum. Nánari úrslit má finna á keppnissíðu TSÍ: https://ice.
Meistaraflokk Kvenna einliðaleikur
1. Emilía Eyva Thygesen, Víking
2. Anna Soffía Grönholm, TFK
3. Sofia Sóley Jónasdóttir, TFK
Meistaraflokk Karlar einliðaleikur
1. Rafn Kumar Bonifacius, HMR
2. Egill Sigurðsson, Víking
3. Daniel Pozo, Fjölnir
Meistaraflokk Karlar tvíliðaleikur
1. Rafn Kumar Bonifacius+Raj Kumar Bonifacius, HMR/Víking
2. Alfonso Jaime De Alba Portillo+Davíð Ármann Eyþórsson, TFK/TFG
3. Ómar Páll Jónasson+Andri Mateo Uscategui Oscarsson, TFK
Meistaraflokk Tvenndarleikur
1. Viktor Freyr Hugason+María Ósk J. Hermannsdóttir, TFK/TFG
2. Tino Friscic+Stella Balder, TFK
3. Gunnar Ragnar Einarsson+Heba Hauksdóttir, TFG/Víking
Börn U10 einliðaleikur
1. Sigurður Þór Stefánsson, TFK
2. Elvar Örn Gunnarsson, Víking
3. Sölvi Harðarson, TFK
Börn U10 tvíliðaleikur
1. Elvar Örn Gunnarsson+Viðar Þór Gunnarsson, Víking
2. Viggó Arnarson+Sölvi Harðarson, TFK
Stelpur U12 einliðaleikur
1. Hera Dröfn Guðmundsdóttir, TFK
2. Sigurlaug Silja Snorradóttir, TFK
3. Lilja Vernharðsdóttir, TFK
Strakar U12 einliðaleikur
1. Marius Thomas Rein, HMR
2. Pól Jóhannes Í Horni, HMR
3. Jae In Lee, TFG
Börn U12 tvíliðaleikur
1. Pól Jóhannes Í Horni+Sigurður Thór Stefánsson, HMR/TFK
2. Cézembre Lefeuvre+Bram Mathew, HMR
3. Jóhann Ágúst Eiríksson+Matthias Diego Wei Markússon, TFG
Stelpur U14 einliðaleikur
1. Gerður Líf Stefánsdóttir, TFK
2. Hildur Sóley Freysdóttir, Víking
3. Paula Marie Moreno Monsalve, Fjölnir
Strakar U14 einliðaleikur
1. Karim Mansour, TFK
2. Ólafur Birkir Baldursson, TFK
3. Tomas Marshall, TFK
Börn U14 tvíliðaleikur
1. Hildur Sóley Freysdóttir+Gerður Líf Stefánsdóttir, Víking/TFK
2. Emma Ósk Finnsdóttir+Auður Björk Jónsdóttir, TFK
3. Starkaður Arnarson+Axel Róbert Pogels, TFG
Stelpur U16 einliðaleikur
1. Gerður Líf Stefánsdóttir, TFK
2. Paula Marie Moreno Monsalve, Fjölnir
3. Alana Lourdes Jones, TFK
Strakar U16 einliðaleikur
1. Jóhann Freyr Ingimarsson, TFK
2. Juan Pablo Moreno Monsalve, Fjölnir
3. Hady Mansour, TFK
Börn U16 tvíliðaleikur
1. Jóhann Freyr Ingimarsson+Karim Mansour, TFK
2. Hildur Sóley Freysdóttir+Gerður Líf Stefánsdóttir, Víking/TFK
3. Björn Héðinn Guðmundsson+Óðinn Freyr Hugason, TFK
Stelpur U18 einliðaleikur
1. Saule Zukauskaite, Fjölnir
2. Íva Jovisic, Fjölnir
3. Hildur Sóley Freysdóttir, Víking
Strakar U18 einliðaleikur
1. Ómar Páll Jónasson, TFK
2. Andri Mateo Uscategui Oscarsson, TFK
3. Daniel Pozo, Fjölinr
Börn U18 tvíliðaleikur
1. Íva Jovisic + Saule Zukauskaite,
2. Hildur Sóley Freysdóttir+Gerður Líf Stefánsdóttir,
3. Brynja Árnadóttir + Gabriela Lind Steinarsdóttir & Magnús Valur Albertsson + Ómar Páll Jónasson, TFK / TFG
Kvenna 30+ einliðaleikur
1. Kristín Inga Hannesdóttir, Víking
2. Ása Björg Guðlaugsdóttir, Fjölnir
3. Stella Balder, TFK
Karlar 30+ einliðaleikur
1. Rafn Kumar Bonifacius, HMR
2. Alfonso Jaime De Alba Portillo, TFK
3. Tino Friscic, TFK
Karlar 30+ tvíliðaleikur
1. Alfonso Jaime De Alba Portillo+Jonathan Wilkins, TFK / HMR
2. Joaquin Armesto Nuevo+Hrólfur Sigurðsson, Fjölnir
3. Mario Frade+Aron Gísli Helgason, Fjölnir / TFH
Kvenna 30+ tvíliðaleikur
1. Irka Cacicedo Jaroszynska+Sigriður Sigurðardóttir, Fjölnir / Þróttur
2. Eva Dögg Kristbjörnsdóttir+María Pétursdóttir, HMR
3. Kristín Inga Hannesdóttir+Thórunn Hannesdóttir, Víking
Karlar 50+ einliðaleikur
1. Magnús K. Sigurðsson, Víking
2. Ólafur Helgi Jónsson, Fjölnir
3. Hrólfur Sigurðsson, Fjölnir
Kvenna 50+ tvíliðaleikur
1. Ragnheiður Ásta Guðnadóttir+Hanna Jóna Skúladóttir, Víking
2. Eva Dögg Kristbjörnsdóttir+María Pétursdóttir, HMR
























