3. Stórmót TSÍ 2016

Mótið verður 25.‐27. nóvember 2016 í Tennishöllinni Kópavogi!

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” í öllum barna- og unglingaflokkum – föstudaginn, 25. nóvember kl. 17-18
  • Einliðaleikir í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
  • Einliðaleikir í ITN flokki

ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mótsgjald

Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis; 2.400 kr./ barna- og unglingaflokkar; 3.500 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætist þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning

Skráning hér að neðan og tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 21. nóvember kl. 18. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzuveislu og verðlaunaafhendingar sunnudaginn, 27. nóvember eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótaskrá

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður Sunnudaginn, 27.nóvember kl.15.30
1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum
Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is