Íslandsmót innanhúss hefst fimmtudaginn 21.apríl og stendur fram á mánudaginn 25.apríl. Keppt er í Tennishöllinni Kópavogi.
Vinsamlegast athugið – Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum
Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.
Verðlaun eru veitt fyrir 1., 2., og 3.sæti og þátttökuverðlaun fyrir alla í Mini Tennis og U10 flokkana.
Úrslitaleikur, verðlaunaafhending og pizzapartý hefst sunnudaginn, 24.apríl kl.18
Dómarahappadrætti – vertu með!
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius s. 820-0825 eða netfang: raj@tennis.is