Hera Björk og Rafn Kumar Íslandsmeistarar innanhúss

Íslandsmeistarar innanhúss 2016 - Rafn Kumar og Hera Björk

Íslandsmeistarar innanhúss 2016 – Rafn Kumar og Hera Björk

Úrslitaleikur í tvíliðaleik kvenna. Frá vinstri: Hera Björk, Anna Soffia, Ingibjörg Anna og Selma Dagmar

Úrslitaleikur í tvíliðaleik kvenna. Frá vinstri: Hera Björk, Anna Soffia, Ingibjörg Anna og Selma Dagmar

Íslandsmóti innanhúss lauk í gær í meistaraflokki karla og kvenna. Hera Björk Brynjarsdóttir úr Tennisdeild Fjölnis og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykjavíkur urðu bæði tvöfaldir Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki í meistaraflokki. Þetta er þriðja árið í röð sem Rafn Kumar landar titlinu auk og fjórða árið í röð í tvíliðaleik. Þetta er í fyrsta skipti sem Hera Björk fagnar titlinum.

Í úrslitaleik karla mættust feðgarnir Rafn Kumar og Raj K. Bonifacius úr Tennisdeild Víkings. Rafn Kumar hafði betur og sigraði 6-3 og 6-1. Rafn Kumar varð einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik karla ásamt föður sínum Raj.

Í úrslitaleik kvenna mættust Hera Björk og Anna Soffia Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs. Hera Björk sigraði 6-4 og 6-3 í hörku­leik. Anna Soffia komst í 3:0 í fyrsta setti en Hera Björk vann næstu sex af sjö lot­um og þar með settið, 6-4. Hera Björk komst svo í 4-1 í næsta setti en Anna Soffia minnkaði mun­inn í 4-3, áður en Hera vann næstu tvær lot­ur og settið þar með 6-3. Hera Björk varð einnig Íslandsmeistari í tvíliðaleik kvenna ásamt Önnu Soffiu.

Ekki var keppt í tvenndarleik í meistaraflokki.

Öll úrslit í mótinu má sjá með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.

Íslandsmót Innanhúss – Meistaraflokk Karlar einliða
Íslandsmót Innanhúss – Meistaraflokk Kvenna einliða
Íslandsmót Innanhúss – Meistaraflokk Karla tvíliða
Íslandsmót Innanhúss – Meistaraflokk Kvenna tvíliða
Íslandsmót Innanhúss – Öðlingar karlar 40 ára+ ein – Íslandsmót Innanhúss – Öðlingar 40 ára+ einliða
Íslandsmót Innanhúss – Öðlingar karlar 30 ára+ ein
Íslandsmót Innanhúss – Öðlingar karlar 30 ára+ tví – Íslandsmót Innanhúss – Öðlingar 30 ára+ tvíliða
Íslandsmót Innanhúss – Strákar 18 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Stelpur 18 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Börn 18 ára tvíliða
Íslandsmót Innanhúss – Stelpur 16 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Strákar 16 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Stelpur 14 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Strákar14 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Börn 14 ára tvíliða
Íslandsmót Innanhúss – Börn 12 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Börn 10 ára einliða
Íslandsmót Innanhúss – Mini Tennis einliða
Úrslitaleikur í tvíliðaleik karla. Raj, Rafn Kumar, Guðjón Björn og Egill

Úrslitaleikur í tvíliðaleik karla. Raj, Rafn Kumar, Guðjón Björn og Egill