Í gær var leikinn annar undanúrslitaleikur í kvennaflokki og ein umferð í riðlakeppni karla á meistaramóti TSÍ.
Úrslit leikjanna:
Hera-Sofia Sóley 62 16 64
Hinrik-Ástmundur 63 63
Teitur-Vladimir 64 26 64
Í kvöld, föstudag 8.janúar, eru spilaðir úrslitaleikur og leikur um þriðja sætið í kvennaflokki og auk þess lokaleikur í karlaflokki:
Föstudagur kl 20:00
1. sæti kvenna Anna Soffía-Hera
3. sæti kvenna: Hjördís-Sofia Sóley
Lokaleikur í karlariðli: Rafn Kumar-Vladimir
Hér er haldið utanum úrslit leikja og stöðu í riðlum
Uppskeruhátíð tennisfólks verður á sama tíma og lokaleikirnir. Um að gera að horfa á frábæran tennis og fá sér snittur og aðrar léttar veitingar.