Nú stendur yfir keppni í 16-18 ára flokki (f. 1994-1995) í Junior Davis Cup í fjórum þjóðlöndum Evrópu.
Forkeppni fer fram 1.-3. ágúst og er keppt í fjórum riðlum. Ísland er í D-riðli.
Riðill A: Opava, Tékklandi: Búlgaria, Króatía, Tékkland, Ítalía, Portúgal og Tyrkland.
Riðill B: La Rochelle, Frakklandi: Hvíta-Rússland, Frakkland, Ungverjaland, Ísrael, Moldovía, Rúmenia og Svíþjóð.
Riðill C: Wroclaw, Póllandi: Þýskaland, Grikkland, Pólland, Rússland, Serbía og Slóvenia.
Riðill D: Piestany, Slóvakíu: Bosnía & Herzegóvina, Stóra Bretland, Ísland, Holland, Slóvakía, Spánn og Úkraína.
Úrslit verða 6.-8. ágúst í Feneyjum.
Sjá frekar á eftirfarandi vefslóð.
Strákarnir keppa á morgun á móti Úkraínu kl.10 á staðartíma. Keppt er bæði í einliða- og tvíliðaleik.