Tennissamband Íslands hefur tekið saman Íslandsmeistara frá upphafi í öllum greinum, þ.e. einliða-. tvíliða og tvenndarleik fyrir karla og konur í meistaraflokki. Hægt er að nálgast þá samantekt hér.
Arnar Sigurðsson úr Tennisfélagi Kópavogs hefur langoftast orðið Íslandsmeistari eða samtals 34 sinnum og 7 sinnum orðið þrefaldur Íslandsmeistari. Næst á eftir honum koma Hrafnhildur Hannesdóttir úr Fjölni með 19 titla, Margrét Svavarsdóttir með 16 titla og Einar Sigurgeirsson með 15 titla.
Sigursælustu tvíliðaleikspörin í gegnum árin eru:
- Arnar Sigurðsson og Davíð Halldórsson sem hafa unnið 9 titla saman í tvíliðaleik karla
- Hrafnhildur Hannesdóttir og Stefanía Stefánsdóttir sem hafa unnið 5 titla saman í tvíliðaleik kvenna
- Systkynin Arnar og Sigurlaug Sigurðarbörn sem hafa unnið 4 titla saman í tvenndarleik
Einnig hefur verið safnað saman upplýsingum um tenniskonu og tennismann ársins frá upphafi sem má sjá hér.