ÍSI hefur opnað fyrir umsóknir um þátttöku á tveggja vikna námskeiði í Ólympíu í Grikklandi sem haldið verður í sumar. Umsókn er opin einstaklingum sem hafa náð góðum árangri í íþróttum eða starfað innan íþróttahreyfingarinnar, t.d. sem kennarar, þjálfarar eða í félagsstörfum, auk þess að sýna áhuga á málefnum Ólympíuhreyfingarinnar.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) auglýsir eftir tveimur þátttakendum á aldrinum 20–30 ára til að vera fulltrúar ÍSÍ á námskeiðinu, sem fer fram dagana 7.–19. júní 2025 bæði í Aþenu og Ólympíu. Þema námskeiðsins í ár er „Framtíð Íþrótta“ með sérstakri áherslu á tengsl Ólympíuhreyfingarinnar og gervigreindar: tækifæri og ógnanir.
Fræðslan fer fram í formi fyrirlestra, hópavinnu, fræðsluferða og íþróttaþátttöku. Þátttakendum verður allt að kostnaðarlausu – flug, gisting og fæði eru greidd af ÍSÍ og Ólympíuhreyfingunni.
Skilyrði fyrir þátttöku:
- Gott vald á ensku og/eða frönsku.
- Vera á aldrinum 20 – 30 ára
- Vera góð fyrirmynd og sýna jákvætt viðhorf.
Umsóknarfrestur er til 16. mars 2025.
Skráning fer fram hér: https://isi.is/fraedsla/olympiuakademian/