1. Stórmót TSÍ verður haldið 1. – 3. nóvember 2019 í Tennishöllinni Kópavogi.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- “Mini Tennis” – Laugardaginn, 2.nóvember kl.12.30
- Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
- Einliðaleik í ITN flokki
ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þann stað sem hann telur vera réttan. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.
Mótsgjald:
Einliðaleikur
- 2.500 kr./mini tennis
- 3.000 kr./ barna- og unglingaflokkum
- 4.000 kr./ ITN
Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.
Skráning: www.tennissamband.is , www.tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is
ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudagurinn , 28. október kl. 18. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.
Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudeginum, 3. nóvember eftir úrslitaleik í ITN flokki.
Mótskrá: Tilbúin 30. október (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is