Dómaranámskeið I & II

Október – Nóvember 2019

Dómaranámskeið I er fyrir alla fædda 2006 og fyrr sem hafa áhuga á að læra tennisreglurnar og hvernig það er að dæma tennisleik – bæði sem línudómari og/eða stóldómari.   Kennslugögn eru frá alþjóða tennissambandinu og fá þátttakendur möppu með reglubók, skorkort og myndrænar leiðbeiningar.

Dómaranámskeið II er fyrir þá sem hafa starfað sem línu- eða stóldómari og vantar meiri þjálfun og/eða kunnáttu  sem stóldómari.
Kennslan fer fram í Íþróttamiðstöðunni Laugardal (Engjavegur 6, 104 Reykjavík),  Tennisklúbbi Víkings (Traðarland 1, 108 Reykjavík) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur).

Námskeið I      Laugardaginn,  19.október kl. 9-15 (Íþróttamiðstöðunni í Laugardal)

Sunnudaginn, 20.október kl.14.30-17.30 (Tennisklúbbi Víkings)

Föstudaginn, 25.október kl.18.30-20.30 (Tennishöllinni í Kópavogur)

Námskeið II    Laugardaginn, 16.nóvember kl.9-15 (íþróttamiðstöðunni í Laugardal)

Sunnudaginn, 17.nóvember kl.14.30-17.30 (Tennisklúbbi Víkings)
Föstudaginn,  22.nóvember kl.18.30-20.30 (Tennishöllinni Kópavogur)

Loka skráningardagur – Námskeið I  er 15. október og Námskeið II 12. nóvember.

Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.

Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.

Skráning er á www.tennissamband.is , í síma 820-0825 og hér fyrir neðan.

Kennari námskeiðsins er alþjóða (ITF) tennisdómari , Raj K. Bonifacius.