Samkvæmt fjárhagsáætlun TSÍ 2018, sem samþykkt var á Ársþingi sambandsins í apríl s.l., verður 700.000 kr. ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2018.
Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tennissamband.is. Skilafrestur er til og með 29. desember 2018.
Umsóknin skal eigi vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn, kennitala, símanúmer og heimilisfang umsækjanda
- Banka upplýsingar
- Upplýsingar um mót sem umsækjandi tók þátt í á árinu og hyggst taka þátt í til loka ársins
o Nafn móts og styrkleiki þess
o Staðsetning
o Tímasetning
o Kostnaður
- Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram
- Upphæð styrks sem sótt er um
Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum á nýju ári.