Styrkur vegna afreksverkefna á eigin vegum vegna ársins 2018

Samkvæmt fjárhagsáætlun TSÍ 2018, sem samþykkt var á Ársþingi sambandsins í apríl s.l., verður 700.000 kr. ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2018.

Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tennissamband.is. Skilafrestur er til og með 29. desember 2018.

Umsóknin skal eigi vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  •        Nafn, kennitala, símanúmer og heimilisfang umsækjanda
  •        Banka upplýsingar
  •        Upplýsingar um mót sem umsækjandi tók þátt í á árinu og hyggst taka þátt í til loka ársins

o   Nafn móts og styrkleiki þess

o   Staðsetning

o   Tímasetning

o   Kostnaður

  •        Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram
  •        Upphæð styrks sem sótt er um

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum á nýju ári.