Miðnæturmót Víkings, fimmtudaginn, 26. júlí kl.19-22.30

Miðnæturmót Víkings í tennis verður haldið á Víkingsvöllum fimmtudagskvöldið 26. júlí kl 19:00-22:30.
Mótið hentar öllum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dregið verður saman í stutta tvíliðaleiki, þannig að með- og mótspilarar eru sjaldan þeir sömu. Í lokin eru allar unnar lotur taldar saman.
Mótsgjald 5.500 kr. Matur og drykkur er innifalið. Bikar og tennisvörur  í verðlaun.
Skráið ykkur sem fyrst – bara 16 manns komast inn í þessari keppni – http://tennis.is/mot_skraning/