Skráning – Íslandsmót utanhúss 2015

Íslandsmót utanhúss verður haldið 5.-15.ágúst næstkomandi á Tennisvöllum Þróttar í Laugardalnum. Keppt verður í eftirtöldum flokkum:
Einliðaleikir:
Mini tennis (fædd eftir 1999)
Strákar/Stelpur 10 ára
Strákar/Stelpur 12 ára
Strákar/Stelpur 14 ára
Strákar/Stelpur 16 ára
Strákar/Stelpur 18 ára
Karlar / Konur Meistaraflokk
Karlar / Konur +30 ára
Karlar / Konur +40 ára
Karlar / Konur +50 ára

Tvíliðaleikir:
Strákar/Stelpur 14 ára
Strákar/Stelpur 18 ára
Karlar / Konur Meistaraflokkur
Karlar / Konur +30 ára
Karlar / Konur +40 ára
Karlar / Konur +50 ára

Tvenndarleikur Meistaraflokkur
Tvenndarleikur +30 ára
Tvenndarleikur +40 ára
Tvenndarleikur +50 ára

Vinsamlegast athugið að hægt er að keppa að hámarki í fjórum einliðaleiksflokkum og þremur tvíliða- og/eða tvenndarleiksflokkum. Vinsamlegast athugið að leikmenn sem eru skráðir í fleiri en einn einliðaleiks/tvíliðaleiksflokk gæti þurfti að keppa fleiri en tvo leiki á dag. Flokkar gætu verið sameinaðir ef þurfa þykir.

Skráningu lýkur föstudaginn, 31.júlí.  Mótskrá birt mánudaginn, 3.ágúst.

Þátttökugjald:
Einliðaleikur 1.500 kr. (Míni Tennis); 2.250 kr. barna / unglinga; 3.400 kr. meistara / öðlinga
Tvíliðaleikur 1.500 kr./mann barna / unglinga; 2.250 kr. meistara / öðlinga

Lokahóf – Grillpartý og verðlaunafhending í framhaldi af síðasta leik mótsins á Þróttaraheimilið.

Mótstjóri –  Raj K. Bonifacius (raj@tennis.is, s.820-0825)

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Skráningu í mótið er lokið.