26.ársþingi TSÍ lokið

Helgi Þór var endurkjörinn formaður TSÍ fjórða árið í röð

26.ársþingi TSÍ sem fór fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal lauk síðastliðinn þriðjudag. Engar breytingar urðu á aðalstjórn og varastjórn.

Helgi Þór Jónasson var sjálfkjörinn formaður Tennissamband Íslands fjórða árið í röð. Þrándur Arnþórsson og Bragi Leifur Hauksson voru sjálfkjörin í aðalstjórn til tveggja ára. Fyrir sitja í aðalstjórn Ásta Kristjánsdóttir og Gunnar Þór Finnbjörnsson. Kosin voru áfram í varastjórn Jónas Páll Björnsson, Jón Axel Jónsson, Júlíana Jónsdóttir og Raj K. Bonifacius og voru þau öll sjálfkjörin.