Íslandsmót innanhúss verður haldið 25.-30. mars næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Mini tennis fyrir þau yngstu (fædd árið 2002 eða seinna) Einliðaleikur
- Barna- og unglingaflokkar 10, 12, 14, 16, 18 ára og yngri. Einliða- og tvíliðaleikur
- Meistaraflokkur karla og kvenna. Einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
- Öðlingaflokkar 30, 40, 50 og 60 ára og eldri. Einliða- og tvíliðaleikur
Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.
Vinsamlegast athugið að hámarks þátttaka eru þrír einliðaleiksflokkar og tveir tvíliða/tvenndarflokkar.
Skráningu lýkur föstudaginn 21.mars kl. 18:00. Mótskrá verður svo birt hér á síðunni 23.mars.
Þátttökugjald:
Barnaflokkar: Einliðaleikur 1.500 kr. (Míni Tennis); 2.200 kr. aðra; Tvíliðaleikur 1.000 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 3.200 kr.; Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann
Mótstjóri: Raj Bonifacius sími:820-0825 netfang: tennis@tennis.is
Dregið verður í meistaraflokki karla og kvenna föstudaginn 21.mars kl 20 í Tennishöllinni í Kópavogi.
Skráningu í mótið er lokið.
Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.