Íslandsmót innanhúss 25.-30.mars 2014

Íslandsmót innanhúss  verður haldið 25.-30. mars næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Mini tennis fyrir þau yngstu (fædd árið 2002 eða seinna) Einliðaleikur
  • Barna- og unglingaflokkar 10, 12, 14, 16, 18 ára og yngri. Einliða- og tvíliðaleikur
  • Meistaraflokkur karla og kvenna. Einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
  • Öðlingaflokkar 30, 40, 50 og 60 ára og eldri. Einliða- og tvíliðaleikur

Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Vinsamlegast athugið að hámarks þátttaka eru þrír einliðaleiksflokkar og tveir tvíliða/tvenndarflokkar.

Skráningu lýkur föstudaginn 21.mars kl. 18:00. Mótskrá verður svo birt hér á síðunni 23.mars.

Þátttökugjald:
Barnaflokkar: Einliðaleikur 1.500 kr. (Míni Tennis); 2.200 kr. aðra; Tvíliðaleikur 1.000 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 3.200 kr.; Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann

Mótstjóri: Raj Bonifacius sími:820-0825  netfang: tennis@tennis.is

Dregið verður í meistaraflokki karla og kvenna föstudaginn 21.mars kl 20 í Tennishöllinni í Kópavogi.

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.