Alþjóðlegi tennisdagurinn 3.mars 2014

Alþjóðlegi tennisdagurinn verður haldinn í annað skipti frá upphafi mánudaginn 3.mars 2014. Markmið með deginum er koma tennis á framfæri og auka þátttöku ungra tennisspilara út um allan heim

Miðpunktur dagsins verða tennissýningar í New York, London og Hong Kong þar sem núverandi og fyrrverandi atvinnumenn í tennis munu keppa og sýna listir sínar. Hver sýning mun hafa fyrrverandi eða núverandi atvinnumenn sem hafa annað hvort verið rankaðir númer 1 í heiminum og/eða unnið Grand Slam titil.

Tennissamband Íslands mun halda daginn hátíðlegan annað árið í röð, mánudaginn 4.mars kl 9:30 – 11:00 í Tennishöllinni í Kópavogi, með því að bjóða krökkum frá Klettaskóla til að taka þátt í þessum atburði ásamt tennisspilurum úr landsliði Íslands. Landsliðskrakkarnir  munu einnig sýna tennis ásamt því að kenna nemendum Klettaskóla þessa skemmtilegu íþrótt frekar. Nemendur Klettaskóla eru miklir tennisáhugamenn eins og svo margir aðrir og spila tennis einu sinni í viku í Tennishöllinni. Á meðan á þessum atburði stendur verður boðið upp á bollur í tilefni bolludagsins og fjölmiðlum er boðið á svæðið.

Nánari upplýsingar um Alþjóðlega tennisdaginn má finna á slóðinni www.worldtennisday.com