LUXILON-TOURNAGRIP mótið – mótskrá

LUXILON-TOURNAGRIP mótið hefst í dag, mánudaginn 8.júlí og stendur fram á fimmtudaginn 11.júlí. Mótið er þriðja mótið í sumarmótaröð Víkings. Keppt er úti á tennisvöllum Víkings. Mótskrá má nálgast hér á pdf formi. Einnig er hægt að smella hér og finna nafn sitt til að sjá hvenær maður á að keppa.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius. s. 820-0285

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu

6 mínútum of seint = tapar 2 lotum

11 mínútum of seint = tapar 3 lotum

16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.