ITN sumarmótaröð

Vertu með í ITN Sumarmótaröð Víkings í Tennis 2013. Fimm mót og verðlaun að andvirði 100.000 kr. frá HEAD, WILSON, TOURNAGRIP OG LUXILON. Allir sem taka þátt hafa möguleika á að vinna – því oftar sem þú keppir því meiri líkur á að vinna. Hver kepptur leikur = 1 miði í happdrættispottinn.

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið. “B keppni” verður í öllu mótum, þannig að allir fá a.m.k. 2 leiki í hverju móti.

HEAD Mótið, 10.-13.júní
WILSON Mótið, 18. – 20.júní
TOURNAGRIP Mótið, 1.-4.júlí
LUXILON Mótið, 8.-11.júlí
VÍKINGS Mótið, 22.-25.júlí

Síðasta skráning / afskráningadagur er alltaf 3 dögum fyrir hvert mót.
Mót hefjast kl.15 á hverjum degi og enginn leikur settur á eftir kl.21.30

Mótsgjald mótaröð – 10.000 kr. / fædd 1996 & yngri; 15.000 kr. eldri
Mótsgjald einstaka mót – 2.200 kr. / fædd 1996 og yngri; 3.300 kr. eldri

Grillpartý og verðlaunafhending fyrir Víkingsmótaröðina verður fimmtudaginn, 25.júlí kl.18.30.

Nánari upplýsingar má finna hér.