Dómaranámskeiðið er fyrir alla sem eru fæddir árið 2000 og fyrr sem áhuga hafa á að rifja upp tennisreglurnar og læra að dæma – bæði sem línudómari og/eða stóldómari. Bæði er um
bóklega og verklega kennslu að ræða ásamt prófi (með hjálpargögn) í lokinni.
Kennslan fer fram í Tennisklúbb Víkings, Traðarland 1, 108 Reykjavík.
Mánudaginn, 10.júní kl. 18 – 20 (Bóklegt)
Þriðjudaginn, 11.júni kl. 18 – 20 (Bóklegt)
Miðvikudaginn, 12.júní kl.18 – 20 (Inn á velli)
Fimmtudaginn, 13.júní kl.18 – 20 (Próf með hjálpargögnum)
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn, 6.júní. Námskeiðið stendur öllum til boða og er að
kostnaðarlausu.
Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.
Kennari námskeiðsins er Raj K. Bonifacius.
Vinsamlegast skráið ykkur hér fyrir neðan eða í síma 820-0825 og í Tennishöllinni Kópavogi. Athugið að mikilvægt er að skoða lista yfir skráða keppendur hér fyrir neðan til að vera viss um að skráning hafi tekist.
Listi yfir skráða má sjá hér.