Anna Soffia og Birkir bikarmeistarar TSÍ

Vladimir Ristic (3.sæti), Birkir Gunnarsson (1.sæti) og Rafn Kumar Bonifacius (2.sæti)

Anna Soffia Grönholm og Birkir Gunnarsson, bæði úr Tennisfélagi Kópavogs, sigruðu í kvenna- og karlaflokki á Jólamóti Tennishallarinnar og bikarmóti TSÍ sem lauk nú fyrir áramót.

Keppendur voru um 120 að þessu sinni en spilað var í barnaflokkum, meistaraflokkum, öðlingaflokkum 30 ára og eldri, ljúflingaflokki 40 ára og eldri og byrjendaflokkum. Í öllum flokkum var keppt bæði í kvenna- og karlaflokkum.

Anna Soffía sigraði Heru Björk Brynjarsdóttur úr Fjölni í úrslitaleiknum í meistaraflokki kvenna, 6-1 og 6-3.

Birkir sigraði Rafn Kumar Bonifacius úr Víkingi, 6-1 og 6-4, í úrslitaleiknum í meistaraflokki karla. Í þriðja sæti var Vladimir Ristic úr Tennisfélagi Kópavogs en Hjalti Pálsson gaf leikinn um þriðja sætið.

Anna Soffia Grönholm (1.sæti) og Hera Björk Brynjarsdóttir (2.sæti)

Í tvíliðaleik karla sigruðu feðgarnir Rafn Kumar Bonifacius og Raj K. Bonifacius. Þeir sigruðu Jón Axel Jónsson og Magnús Gunnarsson, báðir úr Tennisfélagi Kópavogs, 6-2 og 6-2.

Öll önnur úrslit í mótinu má sjá hér fyrir neðan:

Tvíliðaleikur

Verðlaun í barna- og unglingaflokkum.