Mótskrá – 3.Stórmót TSÍ 23.-26.mars

3.Stórmót TSÍ hefst á morgun föstudaginn, 23.mars og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og mini tennis.

Mótskrár má sjá hér fyrir neðan:

Mini tennismótið fyrir krakkar 12 ára og yngri (fædd 2000 og síðar) verður á mánudaginn, 26.mars og hefst kl 14:30. Öllum krökkum sem langar til að taka þátt í Mini tennismótinu geta mætt á mánudaginn kl 14:20.

Verðlaunaafhending og pizzapartý fer fram strax eftir úrslitaleik í ITN styrkleikaflokki einliða sem hefst mánudaginn 26.mars kl. 16:00.

Mótsgjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis; 1.500 kr./fædd f. 1996 og yngri; 2.800 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1996 og yngri; 1.500 kr./aðrir

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

  • 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
  • 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
  • 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
  • 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 tennis@tennis.is