3.Stórmót TSÍ – 23.-26.mars 2012

3. Stórmót TSÍ 2012 verður haldið 23.-26.febrúar í Tennishöllinni í Kópavogi.

Keppt verður í fjórum flokkum:
■Mini tennis fyrir þau yngstu (fædd árið 2000 eða yngri)
Mini tennis keppnin fer fram mánudaginn 26.mars frá kl 14:30-16:00
■Barnaflokkar (10, 12 ára og yngri )
■ITN Styrkleikaflokkur einliða sem er opinn fyrir alla
■ITN Styrkleikaflokkur tvíliða sem er opinn fyrir alla

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Mótsgjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis; 1.500 kr./fædd f. 1996 og yngri; 2.800 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1996 og yngri; 1.500 kr./aðrir

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: www.tennissamband.is og á netfang tennis@tennis.is

Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er þriðjudaginn, 20.mars, kl.18.00.

Boltar: Wilson U.S. Open

Dómarahappadrætti: Einn miði fyrir hvern dæmdan leik.

Verðlaunaafhending fer fram eftir úrslitaleik ITN móts sem hefst mánudaginn 26.mars kl.16:00.

Mótskrá: Tilbúin 22.mars (kemur inná www.tennissamband.is)

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 tennis@tennis.is

Skráningu í mótið er lokið.