Mótskrár fyrir 4.Stórmót TSÍ 7.-9.maí 2011

4.Stórmót TSÍ hefst á morgun laugardaginn, 7.maí og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri og 12 ára og yngri. Keppt verður í ITN Styrkleikaflokki laugardaginn, 14.maí.

Mótskrár má sjá hér fyrir neðan

Mini tennismótið fyrir 10 ára og yngri (krakkar fædd 2001 og síðar) verður á mánudaginn, 9.maí og hefst kl 14:30.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:00 á mánudaginn.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja.

Mótstjóri er Raj K. Bonifacius sími: 820-0825, netfang: raj@tennis.is