3.Stórmót TSÍ 1.-3.maí 2010

3. Stórmót TSÍ verður haldið 1-3. maí næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Mótinu er skipt í þrjá flokka, “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fæddir árið 2000 eða yngri), 10 ára og yngri, og svo “Styrkleikaflokk” fyrir alla aðra.

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Síðasti skráningar (og afskráningar!!) dagur fyrir mótið er 29 .apríl, kl. 18:00.

Mótskráin verður tilbúin 30.apríl og hægt verður að nálgast hana á þessari síðu. Einnig er hægt að hringja í mótstjórann Leif Sigurðarson í síma 772-3872 eða senda honum tölvupóst á netfangið leifursigurdarson@windowslive.com

Þátttökugjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis/10 ára; 1.500 kr./fædd f. 1992 og yngri; 2.500 kr./aðra
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1992 og yngri; 1.500 kr./aðra