Síðasta mót ársins, Jólamót Tennishallarinnar og Bikarmót TSÍ verður haldið 19-22. desember fyrir börn og unglinga, 27.-30. desember fyrir fullorðna ásamt ITN flokki. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik á mótinu.
Dagana 19-22 desember er keppt í :
Mini tennis, 10-, 12-, 14-, 16-, og 18 ára og yngri
Mótstjóri er Andri Jónsson
Á milli jóla og nýárs, dagana 27-30 desember er keppt í:
ITN flokki sem er fyrir alla. Einnig er keppt í 30+, 40+ og í byrjendaflokki og tvenndarleik.
Mótstjórar eru: Jónas Páll Björnsson og Grímur Steinn Emilsson
Síðasti skráningardagur er 16.desember.
Mótskrá verður tilbúin 18.desember kl. 17 hér á síðunni og á tennishollin.is.
Úrslitaleikur, verðlaunaafhending og pizzapartý hefst 30. desember kl. 16.
Mótsgjöld í fullorðinsflokkum eru:
* Einliðaleikur: 2.800 kr
* Tvíliðaleikur: 1.600 kr
Mótsgjöld í barnaflokkum eru:
* Einliðaleikur: 1.500 kr
* Tvíliðaleikur: 1.000 kr
* Mini tennis: 1.000 kr
* Verð í ITN flokk fyrir börn 16 ára og yngri er 1.500 kr