Í gær fóru fram undanúrslit í meistaramótinu í meistaraflokki karla og kvenna. Úrslitin voru eftirfarandi:
Iris Staub – Anna Soffia Grönhölm 6-3 6-3
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir – Hera Björk Brynjarsdóttir gefið (Hera var veik og þurfti að gefa leikinn)
Birkir Gunnarsson – Davíð Halldórsson 6-2 6-4
Rafn Kumar Bonifacius – Jón Axel Jónsson 6-1 6-4
Keppt verður til úrslita og um þriðja sætið í dag bæði í karla- og kvennaflokki:
Leikir um 3. sæti í karla- og kvennaflokki
18:00 Anna Soffía – Hera Björk
18:00 Jón Axel – Davíð
Úrslitaleikir í karla- og kvennaflokki
19:30 Íris – Hjördís
19:30 Birkir – Rafn Kumar
Þegar úrslit eru ljós verður verðulaunaafhending og uppskeruhátíð TSÍ. Boðið verður upp á tapasrétti og pizzur fyrir krakkana og þá sem vilja.
Við hvetjum alla tennisáhugamenn til að koma og horfa á góðan tennis og taka þátt í veislunni. Verð er 1500 kr og 500 kr fyrir börn. Hægt er að skrá sig á Facebook hér.