ITF Heimsmeistaramót öðlinga (+50, +55 og +60) í tennis hófst í dag í Lissabon, Portugal. Samtals eru yfir 600 keppendur frá 70 mismunandi löndum – karlar og konur, að taka þátt í einliða, tvíliða og tvenndarleik.
Raj K. Bonifacius er fulltrúi Íslands í ár og vann sinn fyrsta einliðaleik á móti Gurdarshan Singh Ramana frá Indlandi í dag, 6-1, 6-0. Hann keppir næst á morgun á móti Spánverjanum Fernando Jesus Granero sem er raðað nr. 7 á styrkleikalista mótsins.