Tennisþing verður haldið þann 25. apríl nk. kl. 13:00 í húsnæði ÍSÍ að Engjateigi 6, fundarherbergi A.
Dagskrá er skv lögum TSÍ og er sem hér segir:
- Þingsetning.
- Kosnir fastir starfsmenn þingsins.
- Kosnar fastar nefndir: Kjörbréfanefnd. Fjárhagsnefnd. Laga- og leikreglnanefnd. Allsherjarnefnd. Kjörnefnd. Nefndir þessar eru skipaðar þremur mönnum hver.
- Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína og leggur fram fundargerð síðasta ársþings.
- Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga sambandsins til samþykktar.
- Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
- Lagðar fram laga- og leikreglnabreytingar þær sem fram hafa komið.
- Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.
- Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.
- Ákveðið gjald ævifélaga.
- Önnur mál.
- Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna reikninga og fulltrúa á íþróttaþing.
- Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
- Þingslit.
