Anna Soffía og Rafn Kumar verja titla sína á Vormóti HMR-TSÍ 100

Fyrsta tennismót ársins á vegum Tennissamband – Vormót HMR-TSÍ 100, lauk í gær í Tennishöllinni í Kópavogi. Alls tóku 130 keppendur þátt, á aldrinum fimm til fimmtíu og sjö ára, og var keppt í ellefu mismunandi flokkum yfir fjóra keppnisdaga. Mótið heppnaðist afar vel og var þátttaka og stemning til fyrirmyndar.

Sigurvegarar í WTN einliðaleik karla og kvenna voru þau sömu og í fyrra – Anna Soffía Grönholm (TFK) og Rafn Kumar Bonifacius (HMR) – og vörðu þau þar með titla sína með glæsibrag.

Í einliðaleik kvenna var hörð og spennandi þríkeppni milli Önnu Soffíu, Sofiu Sóleyjar Jónasdóttur (TFK) og Riya Nitinkumar Kalugade (HMR). Allir þrír leikirnir réðust í oddalotu (match-tiebreak) í loka­setti, sem sýnir hve jafnt var á með keppendum. Sofia Sóley hafnaði í öðru sæti og Riya í því þriðja.

Í einliðaleik karla sigraði Rafn Kumar á móti Daniel Pozo (Fjölnir) örugglega 6–4, 6–1. Þá vann Andri Mateo Oscarsson Uscategui (TFK) á móti Ómar Pál Jónasson (TFK) í æsispennandi leik, 0–6, 6–2, 12–10, eftir dramatíska oddalotu.

Í WTN-tvíliðaleik sameinuðu Anna Soffía og Sofia Sóley krafta sína og báru sigurorð af bræðrunum Rafni Kumar og Ívani Kumar Bonifacius (HMR) í spennandi leik, 4–2, 3–4, 7–5. Í leik um þriðja sæti sigruðu Ewald Mateo Moura Pálsson (TFK) og Hady Mansour (TFK) þau Ívu Jovisic (Fjölnir) og Saule Zukauskaite (Fjölnir), 4-3, 4-2.

U10 börn einliðaleik
1. Sigurður Thór Stefánsson
2. Elvar Örn Gunnarsson
3. Viggó Arnarson

U12 strákar einliðaleik
1  Marius Thomas Rein
2. Sigurður Thór Stefánsson
3. Jae In Lee

U12 stelpur einliðaleik
1. Lilja Vernharðsdóttir
2. Sigurlaug Silja Snorradóttir
3. Sóley Sara Hermannsdóttir

U14 stelpur einliðaleik
1. Gerður Líf Stefánsdóttir
2. Paula Marie Moreno Monsalve
3. Hildur Sóley Freysdóttir

U14 strákar einliðaleik
1. Karim Mansour
2. Ólafur Birkir Baldursson
3. Breki Þeyr Matthíasson

U14 börn tvíliðaleik
1. Pól Jóhannes Í Horni / Sigurður Thór Stefánsson
2. Cézembre Lefeuvre / Bram Mathew
3. Jae In Lee / Marius Thomas Rein

30+ karlar tvílðaleik
1. Alfonso Jaime De Alba Portillo / Ólafur Páll Einarsson
2. Ragnar Már Garðarsson / Felix Hjálmarsson
3. Ellert Hreinsson / Hermann Karlsson

30+ kvenna tvíliðaleik
1.  Irka Cacicedo Jaroszynska / Sigriður Sigurðardóttir
2.  Stella Balder /  Hildur Margrét Ægisdóttir
3.  Kristín Inga Hannesdóttir /  Thórunn Hannesdóttir

Nánari upplýsingar og úrslit úr öllum flokkum má finna á keppnissíðu TSÍ – https://ice.tournamentsoftware.com/tournament/95D0E306-938F-4872-9814-96FE5A7BB993