Tennissambandið er að innleiða WTN-styrkleikakerfið, sem nýlega var þróað af Alþjóða tennissambandinu (ITF) – World Tennis Number.
Öll úrslit frá mótaröð Tennissambandsins fara inn í WTN-kerfið til að uppfæra núverandi WTN-styrkleika hvers og eins þátttakanda, bæði í einliða- og tvíliðaleik. Nú verður einnig hægt fyrir íslensk tennisfélög að skrá æfingaleiki sinna meðlima til að uppfæra WTN-styrkleika þeirra.
WTN veitir alþjóðlegan staðal fyrir leikmenn og byggir á kvarða frá 40 til 1, þar sem 40 er byrjandi og 1 er úrvals atvinnumaður. Þessi kvarði gildir fyrir alla leikmenn, óháð aldri, kyni eða getu. Leikmenn fá sérstakt ITF World Tennis Number fyrir einliðaleik og annað fyrir tvíliðaleik. Núverandi WTN-styrkleikalista má sjá hér: WTN Styrkleikalisti. Það var samþykkt í gær af ATP (samtök atvinnu karla tennisspilarar), WTA (samtök atvinnu kvenna tennisspilarar) og stjórn ITF að WTN verður notað sem inntöku skilyrði á mótaröð þeirra eftir ATP / WTA heimslistann og ITF heimslistann.
Hér er hlekk til að skrá ykkar æfingaleikjum – skráning
Ef þið hafið ekki fengið WTN-kennitölu, vinsamlega sendið tölvupóst á raj@tennis.is með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn
- Farsímanúmer
- Netfang
- Kyn
- Tennisfélag
- Fæðingardagur
Skráningin er nauðsynleg til að stofna reikning fyrir ykkur.