Breytingar innan TSÍ

Raj Bonifacius hefur verið valinn af landsliðsnefnd til að taka við þjálfun kvennalandsliðs TSÍ en hefur á sama tíma ákveðið að segja af sér úr stjórn til að forðast hagsmunaárekstra þar sem hann sinnir fleiri störfum fyrir sambandið.  Fyrsti varamaður stjórnar, Andri Jónsson, hefur þegar tekið sæti í stjórn í stað Raj.

Stjórn TSÍ þakkar Raj fyrir vel unnin störf síðastliðin ár og býður bæði Raj og Andra velkomna í nýjar stöður.