Þátttaka á námskeiði í Ólympíu

Ert þú á aldrinum 20-30 ára með brennandi áhuga á íþróttum og hefur áhuga á að taka þátt í Ólympíuævintýri í sumar? Leitað er að tveimur einstaklingum sem náð hafa góðum árangri í íþróttum og/eða sinnt kennslu, þjálfun eða félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar ásamt því að sýna málefnum Ólympíuhreyfingarinnar áhuga.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum til að vera fulltrúar ÍSÍ á námskeiði í Ólympíu sem fram fer 8. -21. júní bæði í Aþenu og í Ólympíu. Þemað í ár er samfélagsleg staða íþróttamannsins. Fræðslan fer fram í fyrirlestrum, hópavinnu, fræðsluferðum og með íþróttaþátttöku.

Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera góðar fyrirmyndir.

Skráning fer fram hér þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 25. mars. Allar nánari upplýsingar veitir undirrituð (ragnhildur@isi.is) eða Þórarinn Alvar alvar@isi.is