Vinnustofa fyrir afreksíþróttafólk – tækifæri á samfélagsmiðlum

Þann 8. janúar næstkomandi milli 16:00-18:30 stendur Íþróttamannanefnd ÍSÍ fyrir vinnustofu fyrir afreksíþróttafólk á 3. hæð ÍSÍ. Markmið vinnustofunnar er að veita afreksfólkinu okkar innblástur  til að fullnýta sér tækifærin sem eru á samfélagsmiðlunum og í leiðinni auka möguleika þeirra til að vekja athygli á sér.  

Bryndís Rut Kristófersdóttir frá auglýsingastofunni Kontor mun halda kynningu og fara yfir áhrifaríkustu aðferðirnar til að ná árangri á samfélagsmiðlum, hvernig hægt er að bæta sína framkomu þar og í öðrum fjölmiðlum ásamt því að fara yfir hvernig hægt sé að auka líkurnar á kostuðu samstarfi. Ásamt henni verður gestafyrirlesari með erindi. 

Boðið verður upp á léttar veitingar og gestir verða leystir út með gjafapoka. 

Athugið takmarkað pláss í boði. 

Skráningarfrestur er til 4. janúar. Skráningar skulu berast til imn@isi.is.  

-Íþróttamannanefnd ÍSÍ