TSÍ Dómaranámskeið, 7. – 8. & 13. maí 2022

Dómaranámskeið er fyrir alla fædda 2009 og fyrr sem hafa áhuga á að læra tennis reglurnar og hvernig það er að dæma tennisleik – bæði sem línudómari og/eða stóldómari.

Kennslugögn eru frá alþjóða tennissambandinu og fá þátttakendur möppu með reglubók, skorkort og myndrænar leiðbeiningar.

Kennslan fer fram í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 3.hæð, salu r A (Engjavegur 6, 104 Reykjavík) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur).

Dagsetningar:

  • Laugardaginn, 7. maí, kl. 13-18 (Íþróttamiðstöðinni í Laugardal)
  • Sunnudaginn, 8. maí, kl. 15.30-18 (Íþróttamiðstöðinni i Laugardal)
  • Föstudaginn, 13. maí, kl.18.30-20.30 (Tennishöllinni í Kópavogur)

Loka skráningardagur er föstudaginn, 6. maí

Námskeiðið stendur öllum til boða og að kostnaðarlausu.

Konur eru sérstaklega hvattar til að mæta enda vantar fleiri kvendómara í hreyfinguna.

Kennari námskeiðisins er alþjóða (ITF) tennis dómari, Raj K. Bonifacius

domaranamskeid_plakat_2022