Styrkur vegna afreksverkefna á eigin vegum vegna ársins 2021

Í samræmi við fjárhagsáætlun TSÍ, verður sambærilegri upphæð ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2021 og gert var vegna ársins 2020.

Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tennissamband.is.

Skilafrestur umsókna er til og með föstudeginum 28. janúar 2022.

Umsóknin skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

Nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang umsækjanda.

Banka upplýsingar.

Upplýsingar um mót sem umsækjandi tók þátt í á árinu 2021:

  • Nafn móts og styrkleiki þess
  • Staðsetning
  • Tímasetning
  • Kostnaður
  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram.

Upphæð styrks sem sótt er um.

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum innan viku frá skilafresti, þ.e. í síðasta lagi föstudaginn 4. febrúar 2022.