1. Stórmót TSÍ 2020

14.-16. febrúar

Tennishöllinni Kópavogi

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis”  – Laugardaginn, 15. febrúar kl. 12:30
  • Einliðaleikur í barna- og unglingaflokkum  – 10 ára, 12 ára &  14 ára
  • Einliðaleikur í ITN flokki

ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þann stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður einn leikur upp í 9 lotur.

Mótsgjald: 

Einliðaleikur – 2.500 kr./mini tennis;  3.000 kr./ barna- og unglingaflokkum;  4.000 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 10. febrúar kl. 18.  Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 16. febrúar eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 12. febrúar  (kemur inná  www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825   raj@tennis.is

Stundvísi reglur

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímanlega fyrir leiki sína. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu

6 mínútum of seint = tapar 2 lotum

11 mínútum of seint = tapar 3 lotum

16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.