Verðlaun eru veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti og þátttökuverðlaun fyrir alla í Mini Tennis og U10.
Lokahóf verður á sunnudaginn, 16. júní í framhaldi af úrslitaleikjunum kl. 12:00
Vinsamlega hafa samband ef það vakna spurningar –
Mótstjóri Barna-Unglinga-Öðlingar flokka – Raj s.820-0825
Mótstjóri Meistaraflokks – Þrándur s.821-3919
Stundvísi reglur
Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímanlega fyrir leiki sína. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum
Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.