Anna Soffía Grönholm úr Tennisfélagi Kópavogs og Rafn Kumar Bonifacius úr Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykjavíkur stóðu uppi sem sigurvegarar í meistaraflokki karla og kvenna á Stórmóti HMR TSÍ.
Anna Soffía sigraði Íris Staub úr Tennisfélagi Kópavogs 4-6, 7-5, 6-2 á meðan Rafn Kumar sigraði föður sinn Raj K. Bonifacius 6-1, 1-6, 7-6. Báðir leikirnir voru hnífjafnir í besta veðri á nýjum völlum Tennisklúbbs Víkings í Fossvogsdalnum. Kvennaúrslitaleikurinn var rúmlega þrjár klukkustundir á meðan karla leikurinn endaði með oddalotu í úrslita setti.
Í U12 barnaflokk sigraði Ómar Páll Jónasson á móti Daníel Wang Hansen 6-4, 3-6, 6-2.