TSÍ styrkur vegna verkefna á eigin vegum – Umsókn

Samkvæmt fjárhagsáætlun TSÍ 2017 sem var samþykkt á ársþingi sambandsins, hefur kostnaðarliðurinn um styrki vegna verkefna á eigin vegum verið hækkaður upp í kr. 500.000.- Styrkurinn er ætlaður til að styðja við tennisspilara sem fara á eigin vegum erlendis í mót.

 

Umsókn skal skilað til Tennissambands Íslands á netfangið asta@tennissamband.is.

Skilafrestur er til 12. maí 2017

 

Umsóknin skal eigi vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn, kennitala, símanúmer og heimilisfang umsækjanda
  • Banka upplýsingar
  • Upplýsingar um mót sem umsækjandi hyggst taka þátt í

o   Nafn móts og styrkleiki þess

o   Staðsetning

o   Tímasetning

o   Kostnaður

  • Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram
  • Upphæð styrks sem sótt er um

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn TSÍ og styrkir greiddir út í júní. Styrkþegar þurfa að skila inn stuttri greinagerð að verkefni loknu þar sem farið er yfir árangur og ávinning.