Anton sigraði í 16 ára og yngri á Evrópumóti WOW Air Open

Anton Jihao Magnússon (1.sæti) t.h  og Till Willem Frentz frá þýskalandi (2sæti) t.v.

Anton Jihao Magnússon (1.sæti) t.h og Till Willem Frentz frá þýskalandi (2sæti) t.v.

Tvö evrópumót voru haldin í Tennishöllinni Kópavogi um páskana. Keppt var í einliða- og tvílaðaleik hjá stráka- og stelpuflokkum í 14 ára og yngri og 16 ára og yngri. Mikill fjöldi tók þátt í mótinu og komu keppendur allstaðar að frá Evrópu og víðar eða frá um 20 löndum.

Anton Magnússon tók þátt í einliða- og tvíliðaleiksflokk 16 ára og yngri stráka en hann sigraði í báðum flokkum. Þetta er frábær árangur en hann bar sigur úr bítum gegn 30 keppendum frá 13 löndum.

Anton mætti Til Willem Frentz frá Þýskalandi í úrslitum í einliðaleik og fór leikurinn 6-4 6-3. Í tvíliðaleik spilaði Anton með Pólverjanum Makary Adamek á móti Ítalanum Alberto Giuliani og samlanda sínum Federico Lucini. Anton hefur búið alla ævi á Spáni og æfir og keppir þar en æfir og keppir með Tennisfélagi Kópavogs þegar hann er á landinu. Anton er eins og er í 164 sæti á stykleikalista Evrópska Tennissambandsins fyrir 16 ára og yngri.

Þátttakendur á mótinu gistu flestir á Hótel Smára og í skammtímagistingu í gegnum Airbnb víðs vegar í Kópavoginum. Þrír alþjóðlegir atburðir verða haldnir í Tennishöllinni til viðbótar í sumar en þeir eru Kópavogur Open í lok maí, Tennishöllin Open í byrjun júní og Norrænu Sjúkrahúsaleikarnir í júní. Slíkum alþjóðlegum viðburðum hefur farið ört fjölgandi síðustu ár og eru sífellt fleiri ferðamenn sem leggja leið sína til
landsins vegna íþróttarinnar. Það verður því nóg að gera í Tennishöllinni í sumar þar sem nóg er á döfinni
fyrir íslenska, jafnt sem erlenda tennisspilara og áhugamenn.

Úrslit í 14 ára og yngri má sjá hér.

Úrslit í 16 ára og yngri má sjá hér.