Flottur árangur hjá íslenska 14 ára og yngri landsliðinu á Þróunarmeistaramóti Evrópu í Tyrklandi

Íslensku keppendurnir f.v. Sara Lind Þorkelsdóttir, Björgvin Atli Júlíusson, Gunnar Eiríksson og Sofia Sóley Jónasdóttir

Fyrsta mótinu af tveimur á Þróunarmeistaramóti Evrópu fyrir 14 ára og yngri lauk í gær, og stóðu Íslendingarnir sig með prýði. Íslendingarnir sem voru valin til að keppa á þessu móti eru: Björgvin Atli Júlíusson, Gunnar Eiríksson, Sara Lind Þorkelsdóttir og Sofia Sóley Jónasdóttir. Þau eru öllað keppa í þessu móti í fyrsta sinn nema Gunnar sem keppti einnig í fyrra.

Keppnin samanstendur af tveimur mótum, þar sem keppt er um hvert sæti í báðum mótunum. Eftirfarandi löndum er boðið að senda tvær stelpur og tvo stráka til að keppa fyrir þeirra hönd: Armenía, Albanía, Azerbaijan, Hvíta-Rússland, Bosnía-Herzegovina, Kýpur, Eistland, Georgía, Ísland, Lettland, Litháen, Makedónía, Malta, Moldavía, Svartfjallaland, Tyrkland. Keppt er í bæði einliða- og tvíliðaleik.

Eftirfarandi eru öll úrslit íslensku keppendanna í fyrsta mótinu: ATH. Tölur í sviga bakvið nöfn keppenda er „ranking“ viðkomandi leikmanns í U14 flokk í Evrópu og # þýðir að viðkomandi leikmaður hefur ekki „ranking“.

Gunnar Eiríksson (endaði í 20.sæti) – Einliðaleikur

Umferð 1: Tap vs Alin Andrievs (#) Moldavía 7-5 6-0
Umferð 2: Sigur vs Rajan Dushi (#) Albanía 6-0 7-6
Umferð 3: Sigur vs Liam Delicata (310) Malta 6-4 6-4
Umferð 4: Tap vs Tsimafei Yutkin (578) Hvíta Rússland 6-2 6-3
Umferð 5: Tap vs Artur Soghoyan (#) Armenía 6-2 6-4

Björgvin Atli Júlíusson (endaði í 26.sæti) – Einliðaleikur

Umferð 1: Tap vs Efe Comu (235) Tyrkland 6-0 6-2
Umferð 2: Tap vs Artur Soghoyan (#) Armenía 6-1 6-2
Umferð 3: Sigur vs Mahammad Veliyev (#) Azerbaijan 6-0 6-0
Umferð 4: Tap vs Vanik Avetisyan (477) Armenía 7-6(3) 6-0

Sara Lind Þorkelsdóttir (endaði í 16.sæti) – Einliðaleikur

Umferð 1: Sigur vs Viola Hoti (#) Albanía 7-6(7) 6-2
Umferð 2: Tap vs Mariam Dalakishvili (22) Georgía 6-0 6-0
Umferð 3: Tap vs Senada Mujic (567) Bosnía Hersegovína 6-2 6-0
Umferð 4: Tap vs Elena Jankulovska (110) Makedónía 6-0 6-0
Umferð 5: Tap vs Kýpur – ATH. Gefinn leikur vegna meiðsla hjá Söru

Sofia Sóley Jónasdóttir (endaði í 23.sæti) – Einliðaleikur

Umferð 1: Tap vs Florentia Hadjigeorgiou (503) Kýpur 6-1 6-2
Umferð 2: Sigur vs Brunilda Mrruku (401) Albanía 6-4 2-6 7-5
Umferð 3: Tap vs Marija Tumanoviciute (567) Litháen 7-6 6-2
Umferð 4: Tap vs Marina Hovhannisyan (646) Armenía 6-0 6-4
Umferð 5: Sigur vs Viola Hoti (#) Albanía 6-0 6-1

Tvíliðaleikur – Gunnar & Björgvin

Umferð 1: Tap vs Justas Trainauskas (516) & Julius Adomavicius (96) Litháen 6-4 2-6 2-10

Tvíliðaleikur – Sara & Sofia

Umferð 1: Tap vs Senada Mujic (567) & Laura Tomic (76) Bosnía 6-0 6-1