Dómaranámskeiðið er fyrir alla fædd árið 2000 og fyrr sem áhuga hafa á að rifja upp tennisreglurnar og læra að dæma – bæði sem línudómari og/eða stóldómari. Bæði er um bóklega og verklega kennslu að ræða ásamt prófi (með hjálpargögnum) í lokin.
Kennslan fer fram í Tennisklúbb Víkings, Traðarland 1, 108 Reykjavík.
- Mánudaginn, 16.júní kl. 18 – 20 (Bóklegt)
- Þriðjudaginn, 17.júní FRÍ
- Miðvikudaginn, 18.júni kl. 18 – 20 (Inná velli)
- Fimmtudaginn, 19.júní kl.18 – 21 (Inná velli og próf með hjálpargögnum)
Námskeiðið stendur öllum til boða og er að kostnaðarlausu.
Skráning í síma 820-0825 og á netfangið raj@tennis.is
Kennari námskeiðsins er ITF dómarinn, Raj K. Bonifacius.